Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar fær Fernström-verðlaunin í ár, ein virtustu verðlaun á Norðurlöndum sem eru veitt á sviði læknavísinda. Í tilkynningu frá dómnefnd segir að hann hafi bylt skilningi okkar á erfðafræðilegri fjölbreytni og þætti hennar í heilsu og sjúkdómum.
Verðlaunin eru veitt árlega og afhent þann 7. nóvember, í Lundi í Svíþjóð. Í fréttatilkynningu frá dómnefndinni segir að á síðustu áratugum hafi Kári Stefánsson orðið leiðandi vísindamaður á sviði mannerfðafræði. Með því að nota byltingarkenndar aðferðir sem leiði saman, erfðaupplýsingar, heilsufarsgögn og ættfræðiupplýsingar hafi hann verulega aukið skilning okkar á því hvernig erfðaþættir hafa áhrif á sjúkdómsáhættu. Þá hafi rannsóknir hans einnig varpað ljósi á af hverju einstaklingar geta brugðist á mismunandi hátt við sömu læknismeðferð. Kári Stefánsson hafi því ekki einungis markað djúp spor í rannsóknum sínum heldur einnig haft veruleg áhrif á þróun erfðavísinda í heiminum öllum.
Oskar Hansson, prófessor í taugameinafræði við háskólann í Lundi, sem situr í dómnefndinni segir vísindarannsóknir Kára hafa forystu á heimsvísu og þær hafi skapað mikilvæga nýja þekkingu á fjölda sjúkdóma. Þar nefnir hann sérstaklega Alzheimer-sjúkdóminn, en rannsóknir Kára hafi veitt einstaka innsýn í þróun sjúkdómsins og þannig rutt brautina í þróun nýrra meðferða.